Fréttabréf

Haustönn Fimleikadeildar Fjölnis

18. ágúst 2010 klukkan 15:19
Nú fer haustönn Fimleikadeildar Fjölnis að hefjast og við hlökkum til þess að byrja annan

skemmtilegan vetur saman. Verið er að vinna í æfingatöflu og niðurröðun barna í hópa og ættu

upplýsingar um æfingatíma að berast til ykkar um miðja næstu viku.
Æfingar hefjast svo

samkvæmt stundatöflu 1.september.



Nýskráningar:
Upplýsingar um hvort barnið hafi fengið pláss í fimleikum verða sendar út

föstudaginn 27.ágúst.



Alţjóđlegi Ólympíudagurinn í Egilshöll á morgun - Kl.13.00-15.00

22. júní 2010 klukkan 10:56


Á morgun, miðvikudaginn 23.júní verður Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldin

hátíðlegur. Deildir Fjölnis munu bjóða upp á íþróttastöðvar sem verða settar

upp í Egilshöll milli kl.13.00-15.00.  Stöðvarnar eru byggðar upp sem þrautir

 úr flestum deildum félagsins og verður hægt að spreita sig í hinum ýmsu

íþróttum. Ólympíufarar verða á staðnum og veitar verða viðurkenningar fyrir

þátttöku. Þetta er frábært tækifæri til þess að hreyfa sig og kynnast öllum

þeim íþróttagreinum sem fjölnir hefur upp á að bjóða. Ólympíudagurinn er

ætlaður öllum óháð aldri og íþróttalegri getu.
 
Hlökkum til þess að sjá sem flesta Fjölnisiðkendur :)


Ólympísku gildin eru:
             Að leggja sig fram um að gera sitt besta -  Sýna vináttu og virðingu.

Skráning í Fimleikadeild Fjölnis haustiđ 2010

07. júní 2010 klukkan 09:41
Tekið er á móti skráningum á biðlista í gegnum netfangið  fimleikadeild.fjolnir@gmail.com.

Upplýsingarnar sem fram þurfa að koma eru nafn barns, kennitala,heimilisfang, nafn og

símanúmer forráðamanns.
Eins er vert að taka fram hvort börnin eru byrjendur í fimleikum eða

hvort þau hafa einhverja reynslu.  

Yngstu börnin sem við tökum inn í grunnhópa eru fædd 2005. En við bjóðum einnig uppá

svokallaða krílahópa fyrir þau allra yngstu, eða börn fædd 2006-2007. Foreldrar taka þátt í

æfingunni með  krökkunum og aðstoða þau við æfingar.


Vorsýning

20. maí 2010 klukkan 14:57

Vorsýning!!!

05. maí 2010 klukkan 23:58
Fimleikadeild Fjölnis heldur sína árlegu vorsýningu fimmtudaginn 27.maí í Dalhúsum. Að þessu
sinni verða tvær sýningar, sú fyrri kl.17.00 og sú síðari kl.19.00. Yngir iðkendur deildarinnar sýna
einu sinni (G, F og S-hópar) en eldri hóparnir (T, K og Á-hópar) taka þátt í báðum sýningum.
Generalprufa verður miðvikudaginn 26.maí.


Nánari upplýsingar um generalprufu, búninga og aukaæfingar verða sendar út þegar nær dregur!

FRÍ 1.MAÍ

30. apríl 2010 klukkan 12:14

ALLAR ÆFINGAR HJÁ FIMLEIKADEILD FJÖLNIS


FALLA NIÐUR LAUGARDAGINN 1.MAÍ

Fimleikadeild Fjölnis

  • Netfang: fimleikadeild.fjolnir@gmail.com
  • Heimilisfang: Skrifstofa Fjölnis, Egilshöll
  • Um mig: Skirfstofa Fimleikadeildar er opin mán-ţriđ og fim-fös frá kl.11.00-15.00
  • Annađ: Sími: 594-9645

Á döfinni

Úrslit móta